Forsvarsmenn HB Granda ætla að funda með starfsmönnum síldarbræðslunnar og formanni Verkalýðsfélagsins á morgun. Tilefni fundarins er sú mikla óánægja starfsmanna með þann samdrátt sem orðið hefur á starfsemi síldarbræðslunnar á liðnu ári. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hafa tekjur starfsmanna dregist saman um allt að 56% á milli ára, er það vegna þess að megnið að uppsjávarafla fyrirtækisins hefur verðið landað á Vopnafirði en ekki hér á Akranesi . Nú þegar hafa 5 starfsmenn af 12 hætt störfum og þeir sem eftir eru eru að íhuga einnig að gera það sama. Sú sérþekking sem starfsmenn Síldar-og fiskimjölsverksmiðjunnar búa yfir er fyrirtækinu afar mikilvæg. Formaður félagsins og trúnaðarmaður nefndu því við forsvarsmenn HB Granda á fundinum á miðvikudaginn, að fyrirtækið verði að mæta þeim mikla samdrætti á launum starfsmanna með einum eða öðrum hætti. Væntanlega munu forsvarsmenn fyrirtækisins svara þessari beiðni félagsins á morgun.
Fundað um starfsemi Síldar-og fiskimjölsverksmiðjunnar á morgun
Fundað um starfsemi Síldar-og fiskimjölsverksmiðjunnar á morgun
