Sumarútleigu orlofshúsa lýkur senn, eða 9. september nk. Eftir það verða engir orlofspunktar dregnir frá inneign félagsmanna þó þeir taki bústað á leigu hjá félaginu.
Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér orlofshús félagsins í vetur, skella sér í Stykkishólm, Húsafell, Svínadal, Hraunborgir eða Ölfusborgir og hafa það notalegt í skammdeginu.
Sjá nánari upplýsingar um vetrarútleiguna undir flipanum Orlofshús.
