Samningafundi með forsvarsmönnum Norðuráls var rétt í þessu að ljúka. Það sem samningsaðilar gerðu á þessum fundi var að fara yfir kröfur stéttarfélaganna, grein fyrir grein og miðar þeirri vinnu ágætlega. Samningsaðilar hafa ekkert rætt um launaliði samningsins, og verður væntanlega farið í þær viðræður fljótlega. Næsti fundur hefur verið boðaður fimmtudaginn 3. febrúar kl. 8:30.
