Samningafundi við forsvarsmenn Íslenska járnblendifélagsins var frestað til kl. 13:00 á morgun. Stéttarfélögin komu fram með nýja hugmynd á fundinum í dag, til lausnar á þessari erfiðu kjaradeilu. Forsvarsmenn Íslenska járnblendifélagsins báðu um frest eins og áður sagði til morguns sem stéttarfélögin að sjálfsögðu veittu. Það er einlæg von Verkalýðsfélags Akraness að þessari svo mjög erfiðu kjaradeilu ljúki með nýjum kjarasamningi á morgun. Því beri samningsaðilum ekki gæfa til að leysa þessa deilu á fundinum á morgun, er veruleg hætta á að harka hlaupi í þessa kjaradeilu.
