Fundað var hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjarasamnings Íslenska járnblendifélagsins. Stéttarfélögin lögðu fram tillögu að nýju bónuskerfi, og er það nú til skoðunar hjá stjórnendum Íj. Ákveðið hefur verið að funda nokkuð stíft í þessari viku og er næsti fundur miðvikudaginn 15. des. kl. 10:00. Eru deiluaðilar sammála um að reyna að klára samninginn fyrir áramót.
