Fundur verður haldinn um gildissvið kjarasamnings Norðuráls á morgun kl. 09:00. Einnig munu trúnaðarmenn og formenn stéttarfélaganna funda kl. 12:00. Á þeim fundi ætlar samninganefndin að fara yfir stöðuna. Eins fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hafa samningsaðilar komið sér saman um að fara í þær kröfur sem ekki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir fyrirtækið. Ætla menn að klára þau atriði nú desember. Í janúar verða síðan launaliðirnir til umræðu.
