Dagskrá fundarins var staðan í samningamálum félagsins. Mestur tími fór í að ræða þá stöðu sem upp er komin í ríkissamningum, en eins og fram kemur hér á heimasíðunni var ríkissamningurinn felldur í gær. Ennfremur voru sjómannasamningarnir til umræðu, kom fram í máli formanns að ríkissáttasemjari hefur ákveðið að kalla samninganefndir deiluaðila ekki saman fyrr enn í ágúst, Kjarasamningur samiðnar var líka til umræðu sem og nýgerður vaktasamningur við HB-Granda
