Samningur Starfsgreinasambandsins við ríkið samþykktur í öllum félögum nema tveim

Samningur Starfsgreinasambandsins við ríkið samþykktur í öllum félögum nema tveim

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og fjármálaráherra f.h. ríkissjóðs hins vegar, sem undirritaður var 7. apríl 2004 liggur nú fyrir. Á kjörskrá voru 2134 en 33% greiddu atkvæði um samninginn í öllum félögunum, þannig að 81,3% samþykktu hann en 18% greiddu atkvæði gegn samningnum. 0,7% atkvæða voru auð eða ógild. Samningurinn er því samþykktur í öllum viðkomandi aðildarfélögum sambandsins sem málið varðar, nema hjá Verkalýðsfélagi Akraness og hjá Verkalýðsfélaginu Vöku, Siglufirði. Á Akranesi greiddu 32 félagsmenn atkvæði eða 40%. Af þeim sem greiddu atkvæði höfnuðu 28 samningnum eða 87,5%. Á Siglufirði greiddu 17 atkvæði um samninginn eða 41,5% en þar höfnuðu 16 samningnum eða 94,1%

Hjá stærstu félögum SGS, var samningurinn samþykktu með miklum mun: 92,4% hjá Eflingu- stéttarfélagi í Reykjavík, 96% hjá Einingu Iðju á Akureyri, 72% í Keflavík og í Grindavík, en þar var talið saman og 93% á Selfossi.

kranesi, höfnuðu 28 samningnum eða 87,5%. Á Siglufirði greiddu 17 atkvæði um samninginn eða 41,5% en þar höfnuðu 16 samningnum eða 94,1%

Hjá stærstu félögum SGS, var samningurinn samþykktu með miklum mun: 92,4% hjá Eflingu- stéttarfélagi í Reykjavík, 96% hjá Einingu Iðju á Akureyri, 72% í Keflavík og í Grindavík, en þar var talið saman og 93% á Selfossi.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.