Verkalýðsfélag Akraness ásamt starfsmönnum Spalar gengu frá fyrirtækjasamningi fyrir nokkrum dögum á milli Spalar ehf. annars vegar og starfsmanna í gjaldskýli hins vegar.
Fyrirtækjasamningurinn hefur sama gildistíma og kjarasamningurinn á hinum almenna vinnumarkaði eða til 30. nóvember 2010.
Heildarhækkun launa starfsmanna gjaldskýlisins í nýjum samningi er um 32 þúsund krónur á mánuði. Einnig hækkuðu orlofs- og desemberuppbætur umtalsvert.
Starfsmenn eru nokkuð vel sáttir við nýgerðan samning, þótt vissuleg hafi gengisfall krónunar og hækkun verðbólgunnar sett strik í reikninginn hvað varðar ávinning af nýgerðum samningi.
