Í nótt landaði Lundey frá Vopnafirði 150 tonnum af kolmunna hér á Akranesi. Skipið varð fyrir einhverri bilun og gat því ekki klárað túrinn að fullu.
Hins vegar kom Faxinn strax í kjölfarið með um 1600 tonn af kolmunna sem er fullfermi. Stendur nú vinnsla í verksmiðju Síldarbræðslunnar á fullu yfir. Ingunn Ak er nú á miðunum og samkvæmt upplýsingum sem formaður hefur fengið þá var Ingunin komin með rúm 400 tonn af kolmuna í gær. Skipin eru að veiðum á Rockhallsvæðinu.
Verksmiðjan hér á Akranesi er ein fárra verksmiðja á landinu sem getur framleitt hágæðamjöl og samkvæmt starfsmönnum hefur nánast allt hráefni sem borist hefur til verksmiðjunnar að undanförnu farið í hágæðamjöl en slík afurð er mun auðseljanlegri en standard mjöl og einnig fæst betra verð fyrir hágæðamjölið en standard mjölið.
