Mikil gleði ríkti hjá starfsmönnum og forsvarsmönnum Laugafisks hér á Akranesi í dag. Ástæða þessarar gleði liggur í því að í dag fékk fyrirtækið endurnýjað starfsleyfi sitt og gildir leyfið til 1. febrúar 2020. Í tilefni dagsins var keypt vegleg terta og formanni félagsins boðið í kaffiveitingar í morgun með forsvarsmönnum og starfsmönnum fyrirtækisins.
Mikil óvissa hefur ríkt um það hvort fyrirtækið myndi fá starfsleyfi sitt endurnýjað vegna kvartana um lyktarmengun frá nágrönnum á undaförnum árum. Það var gríðarlega jákvætt að bæjarstjórn Akraness skyldi mæla með því að starfsleyfið skyldi endurnýjað og var til að mynda breiður pólitískur stuðningur í því máli.
Það liggur fyrir að fyrirtækið hefur kostað þó nokkuð miklu til við að bæta það ástand er lítur að lyktarmengun og hefur forsvarsmönnum og starfsmönnum orðið verulega ágengt í þeim efnum, enda hefur lyktarmengun nánst horfið á síðustu misserum.
Það að starfsleyfi Laugafisks sé nú loksins í höfn er gríðarlegt fagnaðarefni og er þeirri óvissu sem starfsmenn hafa þurft að búa við á undanförnum árum nú endanlega eytt. Yfir 30 manns starfa hjá Laugafiski í dag og til að átta sig á mikilvægi þessa vinnustaðar þá verður hann orðinn stærri en landvinnslan hjá HB Granda þegar þær uppsagnir sem þar voru kynntar nýverið taka gildi.
