Hinn árlega ferð með eldri félagsmenn verður farin í lok þessa mánaðar. Í ár verður suðurlandið skoðað enda margar náttúruperlur á því svæði. Leiðsögumaður í ár verður hinn geðþekki Björn Finsen.
Starfsmenn félagsins ásamt Birni Finsen eru að leggja lokahönd á dagskrána og verður eldri félagsmönnum sent bréf í kringum 20 þessa mánaðar þar sem óskað verður eftir að félagsmenn skrái sig fyrir tilsettan tíma.
Í fyrra var farið á Reykjanesið og heppnaðist sú ferð afskaplega vel og var til að mynda metþátttaka í þeirri ferð en um 130 eldri félagsmenn fóru í þá ferð.
