Nú hefur tíminn leitt í ljós að nýtt sneiðmyndatæki sem félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar á Akranesi gáfu sjúkrahúsi Akraness 31. janúar 2007 hefur gjörbylt allri myndgreiningu á SHA og stórbætt alla þjónustu henni tengdri.
Það var fimm manna vinnuhópur sem formaður félagsins var aðili í sem safnaði fyrir umræddu tæki og gekk sú söfnun framar öllum vonum á sínum tíma.
Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Akraness gaf til að mynda eina milljón til kaupa á þessu nýja CT tæki með það að markmiði að tækið myndi tryggja öryggi okkar félagsmanna enn frekar.
Eins og fram kemur á heimasíðu SHA þá hefur nýtingin á hinu nýja CT tæki SHA verið mjög góð og bætir þjónustu við sjúklinga til muna, gerir rannsókn og meðferð markvissari, unnt er í mörgum tilvikum að leiða í ljós mein og bregðast við fyrr en ella. Auk þess eru óþægilegir og íþyngjandi sjúkraflutningar til Reykjavíkur þessarra erinda nánast úr sögunni.
Það kemur einnig fram á heimasíðu SHA að allar tölvusneiðmyndarannsóknir sem gerðar eru utan spítala í Reykjavík eru að stærstum hluta greiddar af Tryggingastofnun ríkisins. Þessar sömu rannsóknir sem nú eru gerðar á SHA njóta hinsvegar ekki fyrirgreiðslu TR. Þrátt fyrir að sýnt hefur verið fram á aukin gæði í þjónustu, hagræði og hagkvæmni hafa enn ekki tekist samningar um greiðslur til SHA fyrir þessar rannsóknir með sambærilegum hætti og til þjónustuaðila í einkarekstri í Reykjavík.
Það að SHA skuli ekki fá greidd frá Tryggingastofnun ríkisins með sambærilegum hætti og þjónustuaðilar í einkarekstri í Reykjavík er með öllu ólíðandi og ber heilbrigðisráðherra að kippa því í liðinn án tafar.
Hægt er að lesa fréttina frá SHA með því að smella á meira.
|
Frá áramótum hafa verið gerðar ríflega 400 tölvusneiðmyndarannsóknir á SHA. Helmingur sjúklinga kemur frá Akranesi og nágrenni en um 20% sjúklinga eru með lögheimili utan Vesturlands, þar af 10% af Reykjavíkursvæðinu. Nýtingin jafngildir því að um 3 sneiðmyndarannsóknir séu gerðar á myndgreiningadeild SHA hvern virkan dag í þágu skjólstæðinga sem ella hefðu þurft að leita til Reykjavíkur í þessu skyni. |
|
Þetta eru talsvert fleiri rannsóknir en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Undanfarin þrjú ár hafa Vestlendingar sem fengið hafa tilvísun til einkarekinna myndgreiningastofa í Reykjavík verið á bilinu 450 - 500 á ársgrundvelli. Þessi góða nýting á tækjabúnaði SHA bætir þjónustu við sjúklinga til muna, gerir rannsókn og meðferð markvissari, unnt er í mörgum tilvikum að leiða í ljós mein og bregðast við fyrr en ella. Auk þess eru óþægilegir og íþyngjandi sjúkraflutningar til Reykjavíkur þessarra erinda nánast úr sögunni. |
