Trúnaðarmenn HB-Granda ásamt formanni félagsins munu funda með forsvarsmönnum HB-Granda á morgun kl 13:00. Tilefni fundarins er að til stendur að taka í notkun nýja flæðilínu hjá fyrirtækinu og við það verður komið á tvískiptu vaktarkerfi. Það er mjög jákvætt að við þessa breytingu mun að öllum líkindum skapast nokkur ný störf hjá HB-Granda.
