Útlitið ekki gott um að vel takist til með nýjan stofnanasamning fyrir starfsmenn SHA allavega ekki eins og staðan er í dag. Forsvarsmenn SHA lögðu fram tilboð fyrir samninganefnd félagsins, og er það því miður langt í frá að vera ásættanlegt. Kom fram í máli hjá Guðjóni Brjánssyni framkvæmdastjóra SHA sem leiðir viðræðurnar fyrir Sjúkrahús Akraness að stofnunin hafi því miður ekki fengið meira fjármagn frá fjármálaráðuneytinu, meðan ekki komi meira fjármagn geti þeir því ekki boðið betur.
