Skrifað var undir nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa á fjórða tímanum í dag. Óhætt er að segja að erfiðlega hafi gengið að ganga endanlega frá nýjum samningi. Sem er kannski ekkert óeðlilegt þar sem um algerlegan nýjan kjarasamning er um að ræða. Hinn nýi kjarasamningur byggist nánast að öllu leiti á kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins. Verkalýðsfélag Akraness er afar ánægt með að samkomulag skuli hafa náðst um að kjarasamningur Íslenska járnblendifélagsins hafi verið notaður algerlega til viðmiðunar. Það var mat félagsins að eigendur Klafa hafi haft áform um að rjúfa þá kjarasamningsviðmiðun, gagnvart nýjum starfsmönnum. Það er einnig mat Veralýðsfélags Akraness að hér hafi verið gerður mjög góður kjarasamningur fyrir starfsmenn Klafa. Helstu atriði samningsins eru.
Grunnlaun verða 136.731 og hækka um 9.3%
Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. janúar 2005
Búið var til nýtt bónuskerfi sem getur gefið að hámarki 7%
Orlofs og desemberuppbætur verða 96.704, hækka um 15%
Starfsmenn fá eingreiðslu upp á 100.000 þúsund
Framlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð hækkar um 2% á samningstímanum.
Kostnaðaráhrif samningsins á samningstímanum er rétt rúmt 21%
Það sem stendur upp úr er að það náðist að tryggja öll þau kjaraatriði sem voru í kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins í þessum nýja kjarasamningi fyrir alla starfsmenn Klafa. Verkalýðfélag Akraness vill þakka starfsmönnum og síðan en ekki síðast trúnaðarmanni Klafa Hafsteini Þórissyni kærlega fyrir alla hjálpina. Formaður félagsins mun kynna samning fyrir starfsmönnum á mánudag og greidd verður atkvæði um samninginn eftir þá kynningu.
