Unnið hefur verið í allan dag að því að finna lausn á þeim ágreiningi sem kom upp í viðræðunum við forsvarsmenn Klafa á lokasprettinum í gær. Þessi ágreiningur varð þess valdandi að ekki varð skrifað undir nýjan kjarasamning eins og til stóð í gær. Ekki er útilokað að málið fái farsæla lausn og það jafnvel á morgun. Samt segir reynslan okkur sem höfum verið í þessum samningaviðræðum að ekkert er öruggt fyrir enn skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning. En eins og áður sagði þá eru líkur á að samningsaðilar séu að ná lendingu í þessum ágreiningi sem upp kom.
Samningsaðilar reyna að finna lausn á þeim ágreiningi sem kom upp í gær
Samningsaðilar reyna að finna lausn á þeim ágreiningi sem kom upp í gær
