Nú er undirbúningur fyrir sumarið 2006 í hámarki á skrifstofu félagsins. Félagar eiga von á bæklingi inn um lúguna mjög fljótlega þar sem þeir geta sótt um orlofshús og íbúðir í sumar.
Helstu breytingar í sumar eru þær að bústaðirnir að Hlíð í Hvalfjarðarstrandahreppi og Klifabotni í Lóni detta út og í staðinn koma inn nýir bústaðir sem félagið hefur fengið leigða fyrir félagsmenn.
Í Úthlíð, Biskupstungum verða í boði bústaðirnir Breiðabunga og Stórabunga í nokkrar vikur í sumar. Hægt er að skoða myndir af þeim hér.
Einnig vorum við að fá bústað að Eiðum fyrir austan í leigu. Með honum fylgir bátur og veiðileyfi í Eiðavatni. Þó skal tekið fram að stutt er í sund á Egilstöðum ef veiði bregst. Hér er hægt að lesa lýsingu á þessum bústað.
Í Stykkishólmi er Verkalýðsfélagið áfram með í leigu vel búna íbúð í raðhúsi við Laufásveg. Húsið var byggt 2005 og hafa félagsmenn verið duglegir að nýta íbúðina í vetur. Hér er hægt að skoða myndir frá Stykkishólmi.
Auk nýju bústaðanna verða sem áður bústaðir okkar í Svínadal, Húsafelli, Ölfusborgum, Hraunborgum og íbúðirnar á Akureyri í sumarleigu.
Umsóknir um orlofshúsin þurfa að berast skrifstofu félagsins fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 12. apríl. Þeir sem fá úthlutað, fá það staðfest með bréfi.
