Faxi RE 9 landaði hér á Akranesi í gær fullfermi af kolmunna til bræðslu. Formanni félagsins var tjáð í gær af starfsmönnum síldarbræðslunnar að Ingunn AK væri einnig á leið til Akraness með fullfermi af kolmunna, eða um 2000 tonn.
Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá var engum kolmunna landað hér á Akranesi í fyrra. Öllum kolmunna var landað á Vopnafirði. Núna bregður hins vegar þannig við að mun styttra er af miðunum til Akraness heldur en til Vopnafjarðar.
Það hefur komið fram í máli forsvarsmanna HB Granda að einungis hagræðissjónamið eru látin ráða því hvar skip fyrirtækisins landa sínum afla. Á þeirri forsendu eru skip fyrirtækisins væntanlega að landa afla sínum hér á Akranesi.
Verkalýðsfélag Akraness fagnar því að loksins sé kolmunni farinn að berast aftur til bræðslu hér á Akranesi.
Hér er um umtalsverða hagsmuni að ræða fyrir starfsmenn síldarbræðslunnar því tekjur starfsmanna byggjast fyrst og fremst á fjölda vakta sem starfsmenn fá yfir árið. Verkalýðsfélag Akraness hefur bent á að töluverðir hagsmunir séu í húfi fyrir samfélagið hér á Akranesi hvað varðar löndun á uppsjávarafla, nægir þar að nefna tekjur starfsmanna síldarbræðslunnar og einnig tekjur hafnarinnar.
Í fyrra var gríðarlegur samdráttur á launum starfsmanna vegna þess að engum kolmunna var landað hér á Akranesi, sem leiddi af sér umtalsverða fækkun á vöktum starfsmanna.
