Verkalýðsfélag Akraness vinnur nú að því í samvinnu við Símenntunarstöð Vesturlands að halda íslensku námskeið fyrir útlendinga- grunnstig II. Fyrirhugað er að námskeið hefjist 20. mars nk. og mun námskeið fara fram í Fjölbrautarskóla Vesturlands.
Verkalýðsfélag Akraness finnur gríðarlegan áhuga hjá útlendingum fyrir þessu námskeiði. Formaður félagsins hefur verið að hafa samband við forsvarsmenn fyrirtækja sem eru með erlent vinnuafl í sinni þjónustu. Hafa forsvarsmenn fyrirtækja tekið mjög vel í þetta framtak hjá Verkalýðsfélagi og t.d hafa tvö fyrirtæki ákveðið að senda tíu Pólska starfsmenn sína á þetta námskeið.
Fyrirhugað er að námskeið sé í 30 kennslustundir og kostnaður verði 26.000 þúsund. Verkalýðsfélag Akraness vill minna fullgilda félagsmenn á að þeir eiga rétt á styrk frá félaginu sem nemur allt að 75% af námskeiðsgjaldinu. Þannig að kostnaður fullgilds félagsmanns verður 6.500 krónur.
