Tap varð á rekstri Century, móðurfélags Norðuráls á Grundartanga, á síðasta ári. Var það fyrst og fremst vegna reiknaðra liða, svo sem skatta- og afleiðusamninga.
Hagnaður var hins vegar af reglubundnum rekstri, að sögn Ágústar Hafberg framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli. Hann segir að rekstur Norðuráls á Grundartanga hafi gengið vel í fyrra. Þar voru framleidd 272.000 tonn af áli og var útflutningsverðmæti þess ríflega 60 milljarðar króna.
“Veruleg verðlækkun sem orðið hefur á áli hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á rekstrargrundvöll álvera og hefur Century þegar hætt framleiðslu í einu álveri í Bandaríkjunum sem komið var til ára sinna og því ekki lengur samkeppnisfært við núverandi áðstæður.
Staða Norðuráls er hinsvegar mjög traust enda er reksturinn á Grundartanga á heimsmælikvarða. Brugðist hefur verið við erfiðum aðstæðum með lækkun kostnaðar og hagræðingu en engin áform eru uppi um niðurskurð framleiðslu hjá Norðuráli,” segir Ágúst.
