Samninganefnd starfsmanna Sementsverksmiðjunnar skrifaði undir framlengingu á kjarasamningi starfsmanna Sementsverksmiðjunnar í gær í húsakynnum ríkissáttasemjara. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2009 til 31.desember 2010.
Frá 1. febrúar 2009 hækka launataxtar um 3,25% og frá og með 1. ágúst 2009 munu launataxtar hækka í kringum 4%. 1. janúar 2010 munu mánaðarlaun hækka um 2,5%
Orlofs- og desemberuppbætur munu hækka úr 169.468 kr. í 202.000 eða um 32.532 kr. á ári. Einnig verður greidd sérstök eingreiðsla uppá 20.000 kr. við næstu launaútborgun eftir gildistöku samningsins.
