|
Eins og komið hefur fram lagðist umhverfisnefnd bæjarins gegn því að drög að starfsleyfi fyrir verksmiðjuna yrðu samþykkt óbreytt. |
|
Í þeim drögum sem nú liggja fyrir er m.a. gert ráð fyrir að Sementsverksmiðjan hafi heimild til að forvinna 25 þúsund tonn af föstum flokkuðum úrgangi til brennslu í gjallofni verksmiðjunnar og er gert ráð fyrir að starfsleyfið gildi til ársins 2024. Eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu þá er umtalsverð andstaða við þessa ósk um breytingu á starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar. Forsvarsmenn Sementsverksmiðjunnar hafa skrifað grein inná heimasíðu fyrirtækisins þar sem fram kemur að nokkurs misskilnings hefur gætt í umræðu um nýtt starfsleyfi fyrir Sementsverksmiðjuna á Akranesi. Formaður Verkalýðsfélags Akraness fagnar því að bæjarráð ætli að skipa starfshóp til að gera tillögu að umsögn um starfsleyfi fyrir Sementsverksmiðjuna á Akranesi þar sem farið verður yfir málið af yfirvegun og með hagsmuni allra að leiðarljósi, m.a. bæjarbúa, starfsmanna og eigenda verksmiðjunnar. Það liggur fyrir að Sementsverksmiðjan hefur í fimmtíu ár kappkostað að starfa í sátt við íbúa Akraness og umhverfið. Það er afar mikilvægt að svo verði áfram. Hægt er að lesa grein um málið sem birtist á vef Sementsverksmiðjunnar með því að smella á sement. |

Eins og fram hefur komið í fréttum þá samþykkti bæjarráð Akraneskaupstaðar að skipa starfshóp með einum fulltrúa frá hverjum stjórnmálaflokki sem sæti á í bæjarstjórn, til að gera tillögu að umsögn um starfsleyfi fyrir Sementsverksmiðjuna á Akranesi. Bæjarritara var falið að vinna með starfshópnum og leiða starf hans.