Næstkomandi fimmtudag munu um 100 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness 70 ára og eldri halda í dagsferð sem félagið býður árlega upp á. Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum.
Meðal annars verður komið við í Gvendarbrunnum, Hveragerði, Þorlákshöfn, við Urriðafoss og á Nesjavöllum svo eitthvað sé nefnt. Áætluð heimkoma er um kl. 18 til 18:30.
Áð verður á nokkrum stöðum í ferðinni og m.a. boðið uppá léttan hádegisverð á Hótel Örk í Hveragerði. Boðið verður upp á aðrar veitingar um kaffileytið. Leiðsögumaður í ferðinni verður Björn Finsen.
Boðsbréf hefur verið sent til félagsmanna og fer skráning fram á skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13 eða í síma 430-9900 og stendur hún til kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 27. ágúst n.k.
Myndir og fréttir úr ferðinni verða settar inn hér á heimasíðunni við fyrsta tækifæri.
