Formaður félagsins fór í hefðbundna vinnustaðaheimsókn til starfsmanna Elkem Íslands á Grundartanga í morgun. Einnig kíkti formaður á starfsmenn Klafa en þeir sjá um alla út- og uppskipun á Grundartangasvæðinu.
Að sjálfsögðu voru komandi kjarasamningar aðallega ræddir en kjarasamningar hjá þessum fyrirtækjum verða lausir 1. desember nk.
Fram kom í máli þeirra starfsmanna sem formaður ræddi við að þeir vilja gera skammtímasamning í eitt ár enda telja þeir að óvarlegt sé að gera langtímasamning í því ástandi sem ríkir í íslensku efnahagslífi. Formaður er algerlega sammála þeim starfsmönnum sem hann ræddi við, því að gera lengri samning en til eins árs er algert glapræði þegar verðbólgan er tæp 14% og fá teikn á lofti um að hún sé að niðurleið.
Einnig kom fram hjá starfsmönnum að krafa um umtalsverða hækkun grunnlauna verði mjög hávær í komandi samningum enda hafa starfsmenn stóriðja setið töluvert eftir í því launaskriði sem verið hefur á hinum almenna vinnumarkaði á liðnum árum.
