Starfsmannastjóri Norðuráls fundaði með formanni

Starfsmannastjóri Norðuráls fundaði með formanni

Starfsmannastjóri Norðuráls fundaði með formanni

Skúli Skúlason starfsmannastjóri Norðuráls fundaði með formanni félagsins á skrifstofu félagsins í dag.  Þessi fundur var nokkuð góður en formaður fór yfir hin ýmsu mál er lúta að réttindum starfsmanna Norðuráls.  Það eru alltaf einhver mál er varða hagsmuni okkar félagsmanna sem þurfa skoðunar við á jafnstórum vinnustað og Norðurál er. 

Í dag eru um 420 starfsmenn hjá Norðuráli og eru langflestir þeirra félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness eða nánar tiltekið um 320.  Norðurál er einnig langstærsti vinnuveitandinn á félagsvæði Verkalýðsfélags Akraness og ljóst að með tilkomu Norðuráls hefur færst töluvert líf í alla uppbyggingu hér á Akranesi.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.