Verkalýðsfélag Akraness gerði samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga um greiðslu sumaruppbótar til þeirra starfsmanna sem voru að vinna eftir kjarasamningi Launanefndar sveitafélaga og Starfsgreinasambands Íslands og voru í starfi hjá Akraneskaupstað fyrir 29. maí 2005.
Sumaruppbótin hljóðar uppá 19.000 kr. og mun verða greidd afturvirkt til þeirra sem eiga rétt á henni samkvæmt fyrirliggjandi samkomulagi.
Þetta sérákvæði gildir eins og áður sagði fyrir þá sem voru í starfi hjá Akraneskaupstað fyrir 29 maí 2005 og fengu greidda sumaruppbót grundvelli eldri kjarasamnings LN og SGS.
