|
Stjórn Landsmenntar ákvað á stjórnarfundi 13. febrúar sl. að hækka einstaklingsstyrki sjóðsins. Hækkunin tekur gildi f.o.m. 1. janúar 2006. Þetta þýðir að það sem búið er að greiða af styrkjum vegna ársins 2006 þarf að leiðrétta m.t.t. hækkunarinnar. |
|
Hækkunin er sem hér segir: Greitt er að hámarki kr. 44.000.- (var áður 35.000.-), aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskostnaði. Verkalýðsfélag Akraness hvetur félagsmenn sína til að nýtta sér þessa styrki eins og kostur er. Endilega hafi þið samband við skrifstofu félagsins ef þið þurfið nánari upplýsingar. |
