Verkalýðsfélag Akraness er aðili að starfsmenntasjóðum Landsmenntar,Ríkismenntar og Sjómenntar. Á síðasta ári fengu félagsmenn greiddar rúmar tvær milljónir króna úr þessum starfsmenntasjóðum sem félagið er aðili að. Það voru um 120 félagsmenn sem fengu styrki á síðasta ári, 71 kona og 48 karlar.
