Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.


Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá hafa að undanförnu verið haldnir kynningarfundir á vegum félagsins um réttindi og skyldur starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins. Í dag voru það ofngæslumenn á A-vakt sem fengu kynningu og var þetta fimmta kynningin sem formaður hefur haldið með starfsmönnum á síðastliðnum mánuði. Tvær kynningar til viðbótar eru á dagskrá á næstunni.


Ógæfan dynur nú yfir fiskvinnslufólk vítt og breitt um landið en þegar þetta er ritað er búið að segja upp hátt í 100 manns sem starfa í fiskvinnslu í Þorlákshöfn og á Eskifirði. Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir þessar uppsagnir ekki koma sér á óvart og telur hann að fleiri uppsagnir fylgi í kjölfarið.
Starfsmenn Verkalýðsfélags Akraness hafa sent út til um 500 félagsmanna viðhorfskönnun vegna komandi kjarasamninga undir fyrirsögninni Blásið til sóknar!
Formaður félagsins var í viðtali á Bylgjunni í fyrradag þar sem réttindi erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði voru til umræðu.
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið í ljósi þeirra atvika sem upp hafa komið á íslenskum vinnumarkaði er lúta að félagslegum undirboðum að Vinnumálastofnun standi fyrir sérstöku átaki í þeim efnum.