Síðastliðinn laugardag stóðu Verkalýðsfélag Akraness og VR fyrir opnum fundi í Háskólabíói sem bar yfirskriftina "Guð blessi heimilin - okurvextir og verðtrygging, mesta böl þjóðarinnar". Framsögu á fundinum höfðu Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness, Ólafur Margeirsson doktor í hagfræði, Ásta Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Auk þess var fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis boðið að senda fulltrúa á fundinn til að kynna hvað þeirra flokkur ætlar að gera varðandi okurvextina og verðtrygginguna á lánum heimilanna.