Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Það er nokkuð algengt að hin ýmsu félaga- og góðgerðasamtök óski eftir að formaður Verkalýðsfélags Akraness komi og haldi erindi um verkalýðshreyfinguna og þá hagsmunabaráttu sem VLFA stendur fyrir á hverjum degi.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðu VLFA stóð þing Alþýðusambands Íslands yfir dagana 26. til 28. október. Verkalýðsfélag Akraness hefur ætíð látið til sín taka á þessum þingum enda eru þing ASÍ æðsta vald innan verkalýðshreyfingarinnar og þar eru stefna í hinum ýmsu málum mótuð. Á þessu þingi var engin undartekning á og lagði VLFA fram tvær ályktanir. Önnur laut að samningsfrelsi stéttarfélaganna en hin laut að því að skorað var á stjórnvöld og Alþingi að vísitala til neysluverðs til verðtryggingar skv. lögum um vexti og verðtryggingu verði hér eftir reiknuð út án húsnæðisliðar.

