Við minnum félagsmenn á orlofsuppbót - Skv. kjarasamningum er orlofsuppbót greidd af atvinnurekanda.
1. júní almennur kjarasamningur
Allir starfsmenn sem hafa verið í starfi í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á orlofsuppbót.
Full orlofsuppbót er miðuð við 45 unnar vikur eða meira (utan orlofs) á tímabilinu 1. maí til 30. apríl.
Upphæðin skerðist í samræmi við starfshlutfall og starfstíma.
1. júní kjarasamningur við ríkið
Allir starfsmenn sem eru í starfi til 30. apríl næst á undan fá greidda orlofsuppbót. Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu fá greidda orlofsuppbót.
Greitt er hlutfallslega m.v. starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu.
1. maí kjarasamningur við sveitarfélög
Allir starfsmenn eiga rétt á greiðslu persónuuppbóta. Full persónuuppbót er m.v. 100% starfhlutfall.
Aðrir sem eru í minna starfhlutfalli eða hafa starfað hluta úr ári eiga að fá greitt hlutfallslega af fullri persónuuppbót m.v. starfhlutfall og starfstíma.
Nánari upplýsingar Kjaramál
