Þá er prófmál um lögmæti verðtryggingar komið til dómstóla. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur 29. janúar og er málinu stefnt gegn Landsbankanum hf. Í raun var það tilviljun ein sem réði því hvaða fjármálafyrirtæki varð fyrir valinu sem gagnaðili, vinnist málið verður að telja að niðurstaða þess verði fordæmisgefandi gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum einnig. Kröfur málsins sem varða verðtrygginguna og lögmæti hennar eru aðallega að ákvæði skuldabréfsins um verðtryggingu sé óskuldbindandi. Til vara er þess krafist, að viðurkennt verði með dómi að óheimilt sé að uppreikna mánaðarlega höfuðstól skuldabréfsins skv. vísitölu neysluverðs. Þá fylgir að lokum með krafa í síðari kröfulið stefnunnar, þess efnis að uppgreiðslugjald sem Landsbankinn hf. áskilur sér í stofnskjölum lánsins verði ógilt, en það er í augljósri andstöðu við ákvæði 16. gr. a í lögum um Neytendalán nr. 121/1994, eins og þeim var breytt með lögum 63/2008, en þar er mælt fyrir um að gjaldtaka af slíkum neytendalánum sé með öllu óheimil.