Verkalýðsfélag Akraness hefur nú fest kaup á glæsilegum bústað í Svínadal. Bústaðurinn er staðsettur að Efstaási 11 í landi Kambshóls í Eyrarskógi og var hann byggður árið 2002. Bústaðurinn er 65,7 fermetrar að stærð með þremur svefnherbergjum, þar af eru tvö þeirra á efri hæð. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að gera bústaðinn fullbúinn og nú styttist í að félagsmenn geti farið að bóka vikur þar. Ástæðan fyrir því að stjórn félagsins ákvað að festa kaup á þessum glæsilega bústað er fyrst og fremst aukning félagsmanna á undanförnum árum en núna eru rétt rúmlega 3.000 félagsmenn í félaginu og því var bráðnauðsynlegt að fjölga möguleikum félagsmanna til að fá úthlutað sumarhúsi. Þetta er annar bústaðurinn sem félagið kaupir á stuttum tíma en félagið keypti nýlegan bústað í Kjós í Hvalfirði í september í fyrra.