Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Nú hefur Landssamband íslenskra útvegsmanna tilkynnt að þeir muni halda fiskiskipaflotanum í landi um óákveðinn tíma eða allavega eitthvað fram í þessa viku en það er ljóst að þessar aðgerðir útgerðarmanna eru afar umdeildar svo ekki sé fastar að orði kveðið og æði margt sem bendir til þess að þær séu brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Í þeim lögum segir meðal annars orðrétt: "Óheimilt er og að hefja vinnustöðvun:
Í gær var haldinn ársfundur Lífeyrissjóðs Festu á Grandhóteli. Formaður Verkalýðsfélags Akraness lagði fram þrjár tillögur á þessum fundi og verður gert betur grein fyrir öllum tillögunum í annarri frétt sem birtist hér á heimasíðunni. Í þessari frétt verður gerð grein fyrir þeirri tillögu sem var samþykkt en það er skemmst frá því að segja að ein tillaga fékkst samþykkt en tvær voru hins vegar felldar.
Aukaþing Starfsgreinasambands Íslands var haldið í gær en Verkalýðsfélag Akraness átti 6 fulltrúa á þinginu. Meginverkefni þingsins voru lagabreytingar en eins og allir vita þá hafa staðið yfir deilur í SGS um alllanga hríð og voru þessar lagabreytingar að hluta til ætlaðar til þess að lægja þær öldur. Það liggur alveg fyrir að þessar lagabreytingar eru sniðnar til að friða stærsta félagið innan SGS en það liggur alveg ljóst fyrir að Flóabandalagið hefur oft ýjað að því að fara út úr SGS.