Verkalýðsfélag Akraness vill minna félagsmenn sína sem starfa hjá Akraneskaupstað á réttindi sín er lúta að vinnu-, hlífðar- og einkennisfötum. Samkvæmt kjarasamningi eiga hinir ýmsu aðilar sem starfa hjá bæjarfélaginu rétt á fatnaði þeim að kostnaðarlausu. Sem dæmi þá eiga starfsmenn sem starfa á leikskólum rétt á buxum, skyrtu eða íþróttagalla ásamt bol og einnig ef um útivinnu er að ræða, kulda- og regngalla. Einnig eiga starfsmenn í íþróttamannvirkjum og sundlaugum Akraneskaupstaðar rétt á fríum fatnaði, buxum, skyrtu eða íþróttagalla ásamt bol sem og að klossar og stígvél séu til staðar fyrir óþrifaleg störf og kulda- og regngalla ef um útivinnu er að ræða.