Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Eins og flestir muna var gengið frá kjarasamningi á hinum almenna vinnumarkaði 17. febrúar 2008. Í þeim samningi var kveðið á um að launahækkanir skyldu verða með eftirfarandi hætti: 1. mars 2009 áttu þeir sem voru að vinna eftir töxtum að hækka um 13.500 kr. og þeir sem voru ekki að vinna eftir taxtakerfi áttu að fá 3,5% launahækkun. 1. janúar 2010 áttu laun síðan að hækka um 2,5%.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni er búið að fresta viðræðum um nýjan kjarasamning starfsmanna Norðuráls þar til dómur fellur í máli er lítur að stefnu Félags vélstjóra og málmtæknimanna, VM, en þeir gera kröfu um að eiga aðild að kjarasamningi Norðuráls. Formaður hefur áður gert grein fyrir sinni afstöðu í því máli og hægt er að lesa hér á heimasíðunni hver hún er. En rétt er að ítreka það að VLFA harmar þessi vinnubrögð forsvarsmanna VM.
Nú hefur ríkisstjórn Íslands ákveðið í nýjum skattatillögum að standa ekki við það samkomulag (
Formaður Verkalýðsfélags Akraness fundaði með starfsmönnum C og D vaktar Norðuráls í gærkvöldi vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp vegna kjarasamningsgerðar við Norðurál. Samningsaðilar hafa fundað 7 sinnum á undanförnum mánuði og hafa viðræðurnar sem slíkar gengið ágætlega.
Í gær var formaður félagsins í viðtali
Á morgun verður haldinn sjöundi fundur vegna endurnýjunar kjarasamnings starfsmanna Norðuráls og verður fundurinn haldinn eins og áður í húsakynnum ríkissáttasemjara.
Samninganefndir stéttarfélaganna áttu í morgun fund með forsvarsmönnum Norðuráls í húsakynnum ríkissáttasemjara. Fundurinn stóð stutt yfir þar sem samningsaðilar voru sammála um að lausn þyrfti að finnast á ágreiningi sem uppi er í einu máli og var því fundi frestað fram á miðvikudag í næstu viku.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni er kjarasamningur starfsmanna Norðuráls laus nú um áramótin og hefur samninganefnd trúnaðarmanna og stéttarfélaganna átt nokkra fundi með forsvarsmönnum Norðuráls. Eins og einnig hefur komið fram á síðunni hefur sú vinna aðallega snúist um breytingar á textavinnu í kjarasamningnum.