Nú liggur fyrir að ekki verður unnið hrefnukjöt hér á Akranesi eins og til stóð en hrefnuvinnslan hefði skilað allt að 30 nýjum störfum ef af hefði orðið.
Félag hrefnuveiðimanna hefur hins vegar náð samkomulagi við kjötvinnsluna Esju í Reykjavík um að þar verði hrefnukjöt komandi vertíðar unnið, en veiðar hefjast eftir hálfan mánuð. Gunnar Bergmann Jónsson framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna segir að yfirlýsingar Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra um endurskoðun hvalveiða eftir þessa vertíð og hugsanlega stöðvun þeirra hafi kippt stoðunum undan áformum um uppsetningu vinnslustöðvar á Akranesi. Þá hafi yfirvofandi lokun Faxaflóasvæðis vegna hvalaskoðunar þýtt að vinnslustöð á Akranesi væri óhagkvæm. Hér er um áfall að ræða fyrir atvinnulíf á Akranesi enda voru bundnar miklar vonir við að vinnslan myndi skapa fjölda starfa eins og áður hefur komið fram.