Í morgun var haldinn fundur um málefni erlends vinnuafls á Akranesi. Þetta er í annað sinn sem þessir sömu aðilar koma saman til að funda um erlent vinnuafl.
Á fyrri fundinum var ákveðið að koma á fót samstarfvettvangi með það að markmiði að reyna átta sig á hversu margir erlendir starfsmenn eru að störfum á Akranesi og til að reyna að tryggja að þeir atvinnurekendur sem hafa erlenda starfsmenn fari eftir þeim leikreglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði . Þeir aðilar sem koma sameignlega að þessum verkefni eru Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri, Jón Pálmi Jónsson bæjarritari, Ólafur Þ. Hauksson sýslumaður á Akranesi, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness, Stefán Skjaldarson skattstjóri Vesturlandsumdæmis Tryggvi Bjarnason lögfræðingur Skattstofu Vesturlandsumdæmis og Jón S Ólafsson lögreglustjóri