Í dag komu saman formenn þeirra aðildarfélaga sem eiga aðild að Starfsgreinasambandi Íslands. Tilefni fundarins var að fara yfir það samkomulag sem forsendunefndin gerði við Samtök atvinnulífsins í fyrradag. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gerði grein fyrir afstöðu félagsins vegna þessa samkomulags á fundinum í dag. Afstaða félagsins er skýr hvað varðar aðkomu ríkisins að þessu samkomulagi,sem var til fyrirmyndar. Það sem Verkalýðsfélag Akraness gagnrýnir hvað harðast í þessu samkomulagi er að ekkert tillit var tekið til þess verkafólks sem tekur laun eftir kjarasamningi Starfsgreinasambandsins. Kostnaðaráhrif kjarasamnings Starfsgreinasambandsins var einungis 15,8% á samningstímanum. Forsendunefndin gerði enga sértæka leiðréttingu fyrir almennt verkafólk þó svo að það liggi kristal skýrt fyrir að allir aðrir hópar sömdu um langtum meira en 15,8%. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði á fundinum í dag að Starfsgreinasamband Íslands skuldaði þeim félagsmönnum sínum sem vinna eftir kjarasamningi Starfsgreinasambandsins skýringar.