Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.



Síðastliðinn föstudag gekk formaður félagsins, ásamt aðaltrúnaðarmanni Elkem Ísland frá launahækkun sem gildir fyrir starfsmenn Elkem fyrir árin 2015 og 2016. Forsaga málsins er sú að þann 21. mars 2014 gekk Verkalýðsfélag Akraness frá kjarasamningi við Elkem Ísland og gilti hann frá 1. janúar 2014 til 31. janúar 2017, eða í rétt rúm 3 ár. Í samningnum fólst meðal annars að laun skyldu hækka um rúm 9% á fyrsta ári, en launahækkanir fyrir 2015 og 2016 skyldu taka hlutfallslega mið af launahækkunum sem um semdist á hinum almenna vinnumarkaði.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá gerði Verkalýðsfélag Akraness tímamótasamning við Norðurál 17. mars síðastliðinn. Tímamótin voru fólgin í því að laun starfsmanna voru launavísitölutryggð en starfsmenn hækkuðu strax um rúm 6% frá og með 1. janúar síðastliðnum ásamt því að fá 300.000 kr. eingreiðslu hver og einn. Næsta hækkun tekur gildi núna frá 1. júlí síðastliðnum og miðast hún við hækkun launavísitölunnar frá desember 2014 til júlí 2015. Nú liggur hækkun launavísitölunnar fyrir og mun hún skila starfsmönnum launahækkun upp á 4,32% sem mun gilda eins og áður sagði frá og með 1. júlí síðastliðnum.