Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Verkalýðsfélag Akraness vill minna á kynningarfund um nýgerðan kjarasamning SGS við Samtök atvinnulífsins fyrir verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði. Fundurinn er haldinn á Gamla Kaupfélaginu hefst hann klukkan 18:00 og eru félagsmenn eindregið hvattir til að mæta og kynna sér innihald samningsins.
Samiðn
Rétt í þessu voru undirritaðir kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði en það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á við gerð þessa kjarasamnings. Sem dæmi þá hefur Verkalýðsfélag Akraness ásamt aðildarfélögum SGS nú þegar tekið 3 daga í verkfall en slíkt hefur ekki gerst í áratugi að verkafólk hafi þurft að beita verkfallsvopninu til að knýja fram sínar sanngjörnu kröfur um að lágmarkslaun hækki umtalsvert. Í dag er VLFA til dæmis að greiða út á 6. milljón króna í verkfallsbætur til félagsmanna sem sýnir svo ekki verður um villst hversu mikil harka var komin í þessa deilu.
Það er óhætt að segja að það sé komin upp alveg ótrúlega flókin og undarleg staða í kjaraviðræðum á hinum almenna vinnumarkaði. En nú berast fregnir af því að drög að nýjum samningi á milli Flóabandalagsins, VR og Samtaka atvinnulífsins liggi í loftinu en þessir aðilar hafa frestað boðuðu verkfalli um fimm daga en verkafallið átti að hefjast á miðnætti annað kvöld.