Í gærmorgun skilaði EFTA dómstóllinn loks frá sér álitinu sem lengi hefur verið beðið eftir og svaraði þar með þeirri mikilvægu spurningu um hvort fjármálastofnunum hafi verið heimilt að miða við 0% verðbólgu í greiðsluáætlunum og lánasamningum. Niðurstaðan var nákvæmlega sú sem vænst var, þegar greiðsluáætlun er gerð þá er óheimilt að gera ráð fyrir 0% verðbólgu, enda skekkir slíkt það mat sem lántaki getur lagt á raunverulegan kostnaði við verðtryggt lán. Í álitinu er þetta orðað svo: "Þegar lánssamningur er bundinn við vísitölu neysluverðs, samrýmist það ekki tilskipun 87/102/EBE að miðað sé við 0% verðbólgu við útreikning á heildarlántökukostnaði og árlegri hlutfallstölu kostnaðar ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi er ekki 0%".