Fimmtudaginn 2. október næstkomandi mun Verkalýðsfélag Akraness halda fund í Bíóhöllinni með starfsmönnum Norðuráls og hefst hann kl. 20:00.
Ástæðan fyrir fundinum eru komandi kjarasamningar og vill félagið heyra í sem flestum starfsmönnum hvað þeir vilji leggja áherslu á í komandi samningum. Það liggur fyrir að starfsmenn hafa m.a. kvartað sáran yfir stórauknu álagi í verksmiðjunni á liðnum árum og eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá lækkuðu launagreiðslur Norðuráls um rétt tæp 7% á milli ára þrátt fyrir metframleiðslu. Þessi lækkun á launakostnaði verður ekki skýrð með öðrum hætti en að starfsmönnum hafi fækkað og það þrátt fyrir stóraukna framleiðslu.