Í dag rennur út frestur til að sækja um orlofshús eða -íbúð fyrir sumarið svo þeir sem eiga eftir að skila umsókn eru hvattir til að bíða ekki lengur.
Á mánudaginn fer úthlutun fram á þann hátt að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins. Kerfið raðar umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir raðast sá eldri framar í röðina. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu. Varðandi ávinnslu punkta, þá vinnur félagsmaður sér inn einn punkt fyrir hvern þann mánuð sem hann greiðir félagsgjald, en fái hann úthlutað dragast 24 eða 36 punktar frá punktastöðu hans.