Á síðasta miðvikudag var haldinn aðalfundur allra deilda félagsins nema sjómannadeildar enda er sá aðalfundur ætíð haldinn á milli jóla og nýaárs sökum aðstæðna sjómanna.
Auk venjubundinna aðalfundarstarfa, sem eru fólgin í því að kjósa stjórnarmenn í deildirnar, var farið yfir starfsemi félagsins og síðast en ekki síst stöðu kjaramála. Á fundinum fór formaður yfir að Verkalýðsfélag Akraness hefur alfarið hafnað samræmdri launastefnu hvað varðar sérkjarasamninga félagsins á Grundartanga. Enda er þar um sjálfstæða kjarasamninga að ræða og ekki hægt undir nokkrum kringumstæðum að sætta sig við að launakjör þeirra starfsmanna sem þar starfa séu ákvörðuð í einhverri samræmdri launatefnu á milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.