Það er óhætt að segja að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fari mikinn þessa dagana en að undanförnu hafa lágmarkslaun og atvinnuleysis- og örorkubætur verið umtalsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum. Karen Kjartansdóttir, fréttamaður á Stöð 2, hefur fjallað um þetta málefni að undanförnu. Síðastliðinn laugardag var viðtal við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, þar sem hann sagði að hugsanlega væru atvinnuleysisbætur og aðrar bætur orðnar of háar sem gerði það að verkum að fólk kysi frekar að vera til dæmis á atvinnuleysisbótum heldur en að fara að vinna þessi láglaunastörf. Það er alveg ótrúlegt að atvinnurekendur og Samtök atvinnulífsins séu hissa að erfiðlega gangi að manna þessi láglaunastörf einfaldlega í ljósi þeirra staðreynda að þau laun sem eru í boði eru það lág að þau duga ekki til að fólk geti framfleytt sér og sínum. Vandamálið liggur ekki í að atvinnuleysis- og örorkubætur séu of háar, svo mikið er víst. Það eru margir menn eins og t.d Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunnar og Guðbjartur Hannnesson félagsmálaráðherra sem hafa bent á að lágmarkslaun verði að hækka.