Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Verkalýðsfélags Akraness við Samtök atvinnulífsins vegna Elkem Ísland og Klafa ehf. á miðvikudaginn nk.
Samninganefnd félagsins átti fund með SA á fimmtudaginn sl. en þar var nánast öllum kröfum samninganefndar Verkalýðsfélags Akraness hafnað og kom skýrt fram í máli samningamanna Samtaka atvinnulífsins að ekki verði samið um neitt umfram það sem samið verður um í anda samræmdar launastefnu við forystu ASÍ. Það kom einnig skýrt fram hjá SA að þeir ætla að semja til þriggja ára og þeir ætla að semja um eins launahækkanir til handa öllum félagsmönnum ASÍ, algjörlega óháð getu einstakra atvinnugreina.