Aðalstjórn, orlofs- og sjúkrasjóðsstjórn Verkalýðsfélags Akraness funduðu á fimmtudaginn var þar sem gengið var frá ársreikningum félagsins með endurskoðendum.
Afkoma Verkalýðsfélags Akraness á síðasta ári var mjög góð en rekstrarafgangur af allri samstæðunni nam 83 milljónum sem verður að teljast mjög gott miðað við það efnahagsástand sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði. Félagstekjur jukust um tæp 17% á milli ára sem að skýrist af fjölgun félagsmanna og einnig þeim styrku stoðum í atvinnulífi á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness. Nægir að nefna í því samhengi stóriðjusvæðið á Grundartanga og þau fjölmörgu fiskvinnslufyrirtæki sem starfa hér á Akranesi.